Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíđukubbur

HANDVERKS OG HÚSSTJÓRNARSKÓLINN Á HALLOMSSTAĐ

Könnun

er áhugi fyrir STÓR DANSLEIK á Borgfyrđingarhátíđ?

20 ára strákurinn....

08. júlí 2007 klukkan 18:39
Hæhæ ...

ég er kominn heim frá Barcelona, frá æðinslegri ferð með frábæru fólki, komum á Laugardags morgunn heim í Borgarnesið eftir langa heimferð en sátt með frábæra ferð, það var heldur betur skvett úr klaufonum í þessari ótrúlegu borg, kíktum á mannlífið, versluðum mikið af fötum, láum á ströndinni og létum tæjurnar nudda okkur, skoðuðum spánska menningu og fórum í tívolí og margt margt fl....

ég hendi inn myndum í vikunni.... ég lofa:)

svo í gærkvöldi 07.07.07 var skellt sér á ball á akranesinu og var þar alveg heljar gaman og mikið stuð ....
ég fór nu frekar snemma heim því maður var dasaður eftir langa heimferð nóttina áður og sumir komu ekki heim fyrr en í morgunn eða upp undir hádeigi.......

hehehe en það komust nú allir heim á enanum skilst mér sem er nú gott....

hef það ekki lengra að sinni seigir BinniSvalur
Brynjar Berg Guđmundsson
10 athugasemdir

Barcelona í langţráđ frí....

29. júní 2007 klukkan 12:25
Já ég hef nú ekki einu sinni tíma í að henda inn bloggi, mamma er hér öskrandi á mig hvort eg sé búinn að pakka:P
hahahaha ég er aðeins of easy yfir þessari ferð held ég, ég þarf að fara pakka það er innritun eftir 3 tíma Hlæjandi

HAFIÐ ÞAÐ GOTT Á KLAKANUM, ÉG ER FARINN TIL BARCELONA OG HUGSIÐ NÚ VEL TIL MÍN MÁNUDAGINN 2 JÚLÍ... ÞÁ VERÐUR STRÁKURINN 20 ÁRA OG ÞAÐ VERÐUR HALDIÐ UPPÁ ÞAÐ 7 JÚLÍ, þá kem ég heim og beint á Írska daga 07.07.07.

-Brynjar Berg
Brynjar Berg Guđmundsson
3 athugasemdir

Djamm á Föstudaginn.... 8/6 2007

05. júní 2007 klukkan 21:04
Hæ og afsakið bloggið... hef verið voða slappur við bloggið en ætla reyna taka mig á og vona að þið farið að kikja aftur inn til mín:)

Um helgina verður mikil Hátíð i Borgarnesinu og ætlum við Fannar að vera með mega Diskó í Félagsheimili Skugga á Föstudaginn þar sem að DJ Siggi Mæjó og Binni BM munu spila þétta músik í MEGA hljóðkerfi og fullt fullt af ljósum og reykvélar og læti, það eru að detta upp auglýsingar alstaðar þessa stundina en fyrir þá sem ekki vita þá er:

-16 ára aldurstakmark
-þetta byrjarkl. 23:00 og stendur til ca. 03:30

MEGA GAMAN SAMAN OG ALLIR AÐ FOCKINGS MÆTA......

1000 kr i forsölu og 1500 kr við hurð þannig að það er bráð sniðugt að hafa samband við mig eða Fannar og kaupa sér miða sem fyrst...
Fannar-6161126
Binni-    8464976

Síðast þegar við vorum með djamm var það í Valfelli um áramótin og allt sneisafullt og þetta verður með voða svipuðu sniði nema enþá skemmtilegra......

ATH... TAKMARKAÐ MAGN MIÐA!!!!


Binni BM...
Brynjar Berg Guđmundsson
8 athugasemdir

Ný fćrsla (ekki fyrir viđkvćma)

30. apríl 2007 klukkan 12:36
Sælar stelpur og strákar....

afsakið blogg leisið ég bara hef svo engann tíma i þetta þessar vikurnar, margt hefur gengið á í mínu lífi og hjá mínum nánustu vinum, erfiður skilnaðir, líflátshótanir maður er elltur heim tíl sín af helvítis útlendingum og sumir hafa þurft að hefja nýtt líf frá grunni meira að seigja eftir að hafa látið sig hverfa í viku....
svo komum að hræðilegu slysi aðfaranótt Laugardags þar sem að maður hafði ekið á 4 hjóli yfir hvítárvalla brúnna á mikilli ferð og beint á klettana sem eru Ferjukots meginn við brúnna, maðurinn var hálf meðvitundarlaus og héldum við að hann væri látinn þegar við komum og það eru ekki til lýsingarorð né neitt sem geta lýst því hvernig er að koma að svona slysi, hann var mjög alvarlega slasaður (hryggbrotinn og fl) ég hef sára lítið sofið síðan og ekki haft neina matarlist en okkur skylst að hann nái sér að mestu og bíðum við bara og biðjum fyrir honum....
ég hef gengið i gegnum margt á minni stutt æfi en þetta er það versta sem komið hefur fyrir mig og það verður erfitt að hætta að hugsa um þessa mynd sem ég er með í hausnum þegar við komum á slysstað....


Sigurður Mæjó og Ingi Páll  misstu svo Pabba sinn síðasta  Föstudag og vil ég votta þeim og þeirra fjölskyldu alla mína samhúð og hugur minn er hjá ykkur strákar mínir...

kveðjur -Brynjar....
Brynjar Berg Guđmundsson
8 athugasemdir

Akureyri poppar!!!

15. apríl 2007 klukkan 19:45
mega fjör var um helgina á Akureyri og hafði eg mjög gaman af að hitta það fjölmarga fólk sem maður hefur ekki litið augum á í fleiri mánuði og ár.....

toppur helgarinar var ball í gærkvöldi í Höllinni þar sem Buffið meikaði það og svo kom Sjálfur Pall óskar og tók nokkur lög og spilaði svo nokkra ágætlega valda diska...
OG ÉG FÓR UPPÁ SVIÐ OG FÉKK KOSS, EN ÞAÐ VAR BARA MÖMMU KOSS Á MUNN!
ekkert blautt, ekki enþá:P hahahaha

-kem með nánari færslu um helgina i kvöld eða morgunn...

-BinniKoss
Brynjar Berg Guđmundsson
5 athugasemdir

Vor í lofti??

11. apríl 2007 klukkan 17:05
Já sælar allarKoss

Gott að frétta, vor í lofti og menn léttir á því.....

það sem einkennir líf mitt þessa dagana er mest megnis vinna, sofa og borða,
einfallt og gottGlottandi

lítið er að gera í bransanum núna, Izafold eru í studioi að taka upp plötu með Jögvan X Facktor stjörnu núna og svo skilst mér að það sé verið að leggja drög að eithverjum túrum með honum í sumar, semsagt Jögvan og Izafold og þykir mér líklegt að það verði teknir nokkrir hringir kringum landið og mjög sennilegt að við munum nú fara með honum til Færeyja líka, þannig að það verður gaman að fylgjast með þessuBrosandi

Næsta helgi er ekki plönuð, ég veit ekki hvort ég tek eithver böll eða hvort maður renni norður á Akureyri með strákunum og fái sér aðeins í eina tánna og kíki á söngvakeppni frammhaldsskólana sem verður haldin þar í bæ næstkomandi Laugardag, og svo er Páll sjálfur Óskar að þeyta diskum og undirskálum seinna um kvöldið og efast ég ekki um að það verður renn sveittSvalur

Sonja húsó gella er svo 18 ára í dag, til hammó með ammó húsmæðra systirKoss


Ætla margir að fara Norður um helgina???
þið meigið endilega commenta...

              -Binni
Brynjar Berg Guđmundsson
2 athugasemdir

Gleđilega páska...

06. apríl 2007 klukkan 12:21
já allir komnir i páskafrí og voða happy......

Klíkan fór á Fedde Le Grand á Broadway á miðvikudaginn og við misstum vatnið yfir þessum fockings tónleikum, það var alveg þroskaheft að vera þarna inni.... ég á ekki til orð!!

í gær var svo bara þynkan yfirráðandi og við tókum því bara rólega....

í kvöld er svo lokaþáttur X Facktor í vetrargarðinum og endar hann uppúr 22:00 þá þarf ég að vera búinn að drösla mér þangað með sendibíl og taka allt backlinið frá Izafoldargenginu þar út og fara með niðrí æfingarhúsnæði..
www.izafold.is
Svo minni ég á stórdansleik í Logalandi í kvöld með Stuðbandalaginu og fréttir herma að Sissi muni spila ber að ofan og Ásgeir hólm saxafónleikari mun ganga um svið í streng einum saman með vel pússaðan saxan á kvikindinu:)

ég ætti þá líklega að vera detta  i Borgarnes uppúr 01:00 og gæti átt möguleika á að vera mættur i Logaland um 02:00 ef að það verður stemmari fyri því...Svalur

páska kveðjur og unaður til allra....

-Binsimon
Brynjar Berg Guđmundsson
1 athugasemd

17 Júlí= dánardagur....

29. mars 2007 klukkan 12:34
Smá færsla hér....
 
fór til Tansa í gær, og þessi réttingarklefi var bara fín tannlæknastofa og hann var ekkert i galla með hamar, heldur bara hvítum slopp með spegil, fínasti gaur:)

og ég fæ spangirnar 17 Júlí....

kem með nánari færslu um helgina i kvöld en hún er ekki alveg komin á hreint..

Fimt- Izafold- skólaball
Föst Kung Fu skólaball (OFF)
vinna á laugardaginn og á laugardags kvöldið verður gert eithvað gamanKoss
Brynjar Berg Guđmundsson
Engin athugasemd

Síđasti dagur lífs míns senn á enda kominn!!!

27. mars 2007 klukkan 20:47

Á morgunn, miðvikudaginn 28/3 2007 .. nánar tiltekið klukkan 15:30 verð ég mættur á eithvað tannréttingarverkstæði í bænum til þar til gerðs doktors sem mun reyna að laga þessi mistök, semsagt munninn á mérÞögull sem gröfin

ég er að verða helvíti stressaður yfir þessum réttingum öllum, ég hef ekkert séð svona gert og var að reyna gera mér eithverja hugmynd um þetta "verkstæði" og datt fyrst i hug svona réttingarverkstæði eins og klesstir bílar eru settír á, þar inní litlu herbergi bíður mín maður i skítugum olíu galla með vinnuvetlinga og hamar og meitil til að rétta á mér kjaftinn, laga innri brettin á mer og svona!!!


                                                            Gráta
                                                          SHITT



Teinar meinar Einar.....
              

                                                                           -Teini kveður....

og meikið nýju könnunina mína partý dýr
Brynjar Berg Guđmundsson
5 athugasemdir

GusGus er focking máliđ....

25. mars 2007 klukkan 19:26
Góðan sunnudaginn gott fólk...

Við vinirnir héldum brattir af stað í Borgina seinnipart laugardags og var ferðinni heitið í partý og svo á djammið,
fórum við heim til Núma þar sem að hann og Skúli sátu að leik!

Binni BM
Trölli
David
Mrs Bob
og bændurnir og að sjálfsögðu hann Fannar okkar....

Hófst mikil drykkja uppúr 20:00 sem leiddi til þess að sumir voru orðnir hauslausir 2 tímum síðar, en tókst okkur þó öllum að komast niðrá Austurvöll og vorum við mætt þar skömmu fyrir miðnætti, mikil ölvun var í Húsinu og ég sver það að maður gat valla labbað þarna inni, maður barst eiginlega bara með öllu hinu fólkinu og endaði svo oftast eithverstaðar að mig minnir!Saklaus "allt of mikið af fólki"

það er voða erfit að lýsa tónleikunum, fyrir utan geðveikt sound og mega ljósagang æðinslega stemmingu og brjálæðis tónleika sem voru bara stand pína út i gegn.....
það eru ekki til nógu góð lýsingarorð í heiminum til að leggja á þennann concert!
þetta var unaður, stand pína, bjór og vín, hamingja og sviti, og allt allt of gaman.

svo tókum við röllt og svona eftir að við komum út af nasa um 5 i morgun og tókum svo pizzu og leigara til núma og létu síðustu menn lífið um hádeigisbil í dag.....

www.gusgus.com þar getið þið séð live tónlistarmyndbönd og fl...

   ég held svei mér þá að við förum snemma að sofa í kvöld...

---------------------------------------------------------------------------------------
ég er hættur að vera trúaður og er nú Gusaður:-/........
og mun ég biðja til GusGus þar sem eftir er lífs míns........


                 -TAKK TAKK

                                                                         -Binsimon
Brynjar Berg Guđmundsson
Engin athugasemd